Flýtilyklar
Fréttir
Falsađi forsíđumynd

Tæknin sem í boði er við myndvinnslu getur freistað þeirra sem vilja „bæta“ myndirnar sem þeir taka og gera þær áhrifameiri. Slíkt er þó oftast brot á siðareglum, sérstaklega þegar um er að ræða fréttamyndir. Flestir fjölmiðlar taka enda mjög strangt á því ef upp kemst að mynd hafi verið fölsuð eða henni breytt verulega. Dagblaðið Le Maghreb í Túnis gerðist þó sekt um myndafölsun í vikunni og vakti fölsunin althygli alþjóðlega. Um síðustu helgi voru mikil mótmæli í Túnisborg og á milli 8.000 og 10. 000 mótmælendur voru á götunum. Í helgarblaði Le Maghreb birtist mynd á forsíðu sem sýndi mótmælendur, en athugulir lesendur tóku eftir því að átt hafði verið við myndina og hlutar af mannfjöldanum höfðu verið fjölfaldaðir.
Skilafrestur tilnefninga er 6. febrúar!
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 9. skipti þann 3. mars næstkomandi. Rétt er að árétta að skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er mánudagurinn 6. febrúar.
Hvers vegna siđareglur?
Tjáningarfrelsi og lýđrćđi
Innanríkisráðuneytið efnir til fundar um tjáningarfrelsi og lýðræði föstudaginn 27. janúar næstkomandi klukkan 8.30 til 10
í Iðnó í Reykjavík. Erindi flytja Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, og er heiti þess
"Ógna rangfærslur og hlutdrægar fréttir lýðræðinu?" Þá flytur Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður erindi sem hún
nefnir "Segðu mér sömu söguna aftur". Loks mun Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl. fjallar um Tjáningarfrelsi í tengslum við
ákvæði hegningarlaga um meiðyrði. Í framhaldinu gefst kostur á fyrirspurnum og umræðum.
Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Hægt verður að kaupa léttar morgunverðarveitingar á staðnum
Leita
RSS fréttir
- 500.000 kroner til drømmeprojektet
- Læserne skal hjælpe Peter Øvig Knudsen
- FN ind i sagen om fængslede svenskere
- Kina lukker journalister ude af Tibet
- Berlingskes anmeldere skal være freelancere
- Mollerup: Medierne skal feje for egen dør
- Peter Hove Olesen vil ud af fotobestyrelse
- DR bombarderet med klager
- Mistrati: Jeg skylder Chili alt
- Comeback til medarbejderblade
Félagafréttir
Fomannsmolar - NJC

Formannsmolar - séreignasparnađur
Ég vek athygli ykkar á því að samkvæmt ákvörðun stjórnarmeirihlutans á Alþingi hefur leyfilegur frádráttur launamanns vegna séreignalífeyrissparnaðar verið lækkaður úr 4% af launum í 2% á árinu 2012.
Formannsmolar
Samkvæmt kjarasamnini BÍ er jólauppbót á árinu 2011 fyrir fulla vinnu allt árið 48.800 kr. plús 15 þús. sem er sérstakt álag á desemberuppbótina í ár eða samtals kr. 63.800 kr.
Kv.
Hjálmar
Formannsmolar
Sæl! Þriðji morgunfundur BÍ verður haldinn næstkomandi miðvikudag 23. nóvember og hefst klukkan 8.30 í Síðumúla 23, 3. hæð.







