"Glerkśla" frekar en "gleržak" į Nżja Sjįlandi

„Glerkúla“ frekar en „glerþak“ er nýtt hugtak sem nú hefur verið notað í Nýja Sjálandi yfir það hversu fáar konur eru í stjórnunarstöðum á ritstjórnum þar í landi. Nýyrðið byggir á rannsókn sem sýnir að konur sem fara út í blaðamennsku eru mjög ánægðar með starfið en staldra engu að síður mjög stutt við í faginu. Jafnvel konur sem eru ritstjórar eða ritstjórnarlegir yfirmenn eru sjaldan lengur í slíkum störfum en þrjú ár. Háskólaborgarinn Dr. Catherine Strong, sem starfaði sem blaðamaður áður en hún sneri sér að akademíunni, segir að það sé ekki „glerþakið“ víðfræga sem sé meginorsök þess hve fáar konur eru í leiðandi störfum í blaðamennsku, heldur „glerkúla“ sem konur skapi um sig til að verjast karllægu, árásargjörnu og átakamiðuðu umhveri sem einkenni dagblaðamarkaðinn.
Rannsóknarniðurstöðum Dr. Strong hafa vakið umtalsverða athygli enda marka þær frumkvöðlarannsóknir á því hvers vegna
svo fáar konur eru ritstjórar á dagblöðum. Rannsóknir hennar byggja á djúpviðtölum við þær níu konur í
Nýja Sjálandi sem hafa orðið og/eða hætt sem ritstjórar dagblaða á árunum frá 2000 til 2009 þar sem reynsla þeirra og
upplifanir frá því áður en þær urðu ritstjórar, á meðan þær voru ritstjórar og eftir að þær
hættu, voru kortlagðar. Samhliða tók h´n eigindleg viðtöl við leiðandi blaðakonur sem ekki fóru inn í
stjórnunarstöður til þess að skilja betur hvers vegna þær urðu ekki stjórnendur. Loks ræddi hún við karlastjórnendur sem voru
ábyrgir fyrir ráðningum og framgangi í yfirmannsstöður á ritstjórnum.
Sjá einnig hér





