:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Ályktun um velferð gagnrýnna Íslendinga

Stjórnir Hagþenkis, Rithöfundasambands Íslands, Bandalags þýðenda og túlka, Reykjavíkur  akademíunnar, Blaðamannafélags Íslands og PEN á Íslandi vilja af gefnu tilefni minna á eftirfarandi:


Einn af hornsteinum stjórnarskrár Íslands er óskoraður réttur borgaranna til þátttöku í opinni samfélagsumræðu á fundum, í dagblöðum, á netsíðum, ljósvakamiðlum eða í bókum. 
Allar tilraunir flokka, stofnanna, fyrirtækja eða einstaklinga til þess að þagga niður í höfundum texta sem birta skoðanir sem þeim eru eru andstæðar – t.d. með skipulögðum atlögum að velferð höfundar, lögsóknum, hótunum um atvinnumissi eða mannorðsmeiðingum sem grafa undan öryggi hans –  eru jafnframt aðför að sjálfu tjáningarfrelsinu.
Þyki hópum eða einstaklingum að sér vegið í ræðu eða riti, þá stendur þeim til boða, nú sem fyrr, að svara fyrir sig með sama hætti. Það kallast skoðanaskipti – jafnvel ritdeilur – og er siðaðra manna háttur í löndum þar sem lýðréttindi ríkja.
Sjón – Sigurjón Birgir Sigurðsson formaður PEN á Íslandi,
Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands,
Jón Yngvi Jóhannsson formaður Hagþenkis,
Sölvi Björn Sigurðsson formaður Bandalags þýðenda og túlka,
Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands,
Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Reykjavíkur Akademíunnar


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning