Ætla að breyta breskri meiðyrðalöggjöf

Hin nýja samsteypustjórn í Bretlandi hyggur á meiri háttar endurskoðun á meiðyrðalöggjöfinni með það að markmiði að tryggja betur tjáningarfrelsi í fjölmiðlum og í rannsóknarsamfélaginu þar í landi. Hugmyndin er að koma í veg fyrir að hægt sé nánast að gera „út á“ meiðyrðalöggjöfina og beita henni ýmis til að ná háum bótum eða hræða menn og miðla frá því að segja frá tilteknum hlutum.
Það var dómsmálaráðherrann sem tilkynni nú fyrir helgina að frumvarp um þetta yrði lagt fram til almennrar kynningar og í upphafi nýs árs og að málsmeðferðinni yrði hraðað sem kostur er án þess að slegið verði af almennum gæðakröfum um lagasmíð. „Við þurfum bráðnauðsynlega á því að halda að rannsóknarblaðamennska og fræðilegar rannsóknir blómstri og þurfi ekki að lifa í skugga þess að oft ógrundaðar, langvinnar og kostnaðarsamar málssóknir á grunni meiðyrðalaga verði höfðaðar gegn þeim,“ sagði McNally lávarður og dómsmálaráðherra. Hann sagði enn fremur að stjórnin væri ákveðin í að keyra þessa endurskoðun í gegn og reyna að finna rétt og sanngjarnt jafnvægi milli tjáningarfrelsisins annars vegar og persónuverndar og mannorðs hins vegar. Sjá einnig hér





