Almannahagsmunir ráða úrslitum

Frétt Fréttablaðsins er annars svona í heild sinni:
Verður að horfa til almannahagsmuna
„Formaður Blaðamannafélags Íslands, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, segir
siðareglur félagsins ekki taka til kaupa á upplýsingum. Eins og fram hefur komið sætir sautján ára piltur nú lögreglurannsókn vegna
gruns um að hann hafi tekið ófrjálsri hendi tölvugögn með trúnaðarupplýsingum frá Glitni og Milstone. Stöð 2 segir piltinn
hafa boðið þessi gögn til kaups en að þeim viðskiptum hafi verið hafnað. DV hefur birt tlsvert margar fréttir með upplýsingum um
áðurnefnd fyrirtæki; stjórnendur þeirra og viðskiptavini. Reynir Traustason, ritstjóri DV, neitaði í Fréttablaðinu í
gær að gefa upp hvaðan þær upplýsingar blaðsins eru fengnar.
„Nú veit ég ekki frekar en aðrir hvort og þá hvernig DV tengist þessu máli,“ segir formaður Blaðamannafélagsins um hin meintu
stolnu gögn. „Það er náttúrulega ljóst að það er ólöglegt að versla með þýfi en fái fjölmiðill
í hendur upplýsingar sem gætu verið illa fengnar eða brotið á rétti fólks til einkalífs, þá hlýtur að vera
horft til þess hvort almannahagsmunir réttlæti birtingu.“
Þá segir Þóra Kristín flesta fjölmiðla hafa það fyrir vinnureglu að kaupa ekki upplýsingar en siðareglur BÍ taki ekki til
þess atriðis. „Mér er ekki kunnugt um hvernig því er farið í vinnureglum DV,“ segir formaðurinn.“
Þess má geta að Jón Trausti Reynisson skrifar leiðara í
tilefni þessa máls í blað sitt í dag.





