Alþjóðlegt tengslanet lausamanna

Í vikunni verður opnað alþjóðlegt tengslanet sem ætlað er að brúa bilið milli ritstjórnarskrifstofa á alþjóðlegum fréttamiðlum annars vegar og svo blaðamanna um allan heim hins vegar. Findstringers.com, sem er deildi í stórfyrirtækinu VeriCorder Technology Inc., stefnir að því að skapa alþjóðlegum fréttastofum möguleika á að hafa landfræðilega viðveru í öllum heimshornum með því að setja upp alþjóðlegt atvinnutorg eða tegalsanet lausamanna (freelance), sem geta tengst fréttastofnum í gegnum tengslanetið með nokkrum músarsmellum.
Þegar fréttastofurnar þurfa á efni að halda frá tilteknum landsvæðum eða heimshlutum geta þær komist í samband við blaðamenn á svæðinu á mjög auðveldan og skjótvirkan hátt. Að sögn Gary Symons, stofnanda þessa nets, skráir blaðamaðurinn sig inn á netið og gerir í leiðinni fyrirfram tiltekinn starfssamning og að því búnu er ekkert því til fyrir stöðu að hann geti tengst fréttastofum og ritstjórnarkerfum fréttastofanna á nokkrum sekúndum.
Sjá einnig hér





