Ályktun frá Blaðamannafélagi Íslands um uppsagnir á RÚV

Stjórn Blaðamannafélags Íslands sendi nú síðdegis frá sér ályktun vegna uppsagna á Ríkisútvarpinu.
Ályktunin er svohljóðandi:
"Blaðamannafélag Íslands harmar fjöldauppsagnir á Ríkisútvarpinu en stórt skarð er höggvið í raðir
fjölmiðlafólks með þessari ákvörðun. Uppsagnirnar bætast við blóðugan niðurskurð á einkamiðlunum og draga
máttinn úr fréttamiðlum á sama tíma og aðstæður í samfélaginu kalla á öflugar og gagnrýnar fréttir.
Í hópi þeirra fréttamanna sem missa vinnuna eru sumir elstu og reyndustu fréttamenn stofnunarinnar, stjórnendur tveggja vinsælla
fréttaskýringaþátta í úvarpi og sjónvarpi og landsbyggðarfréttamenn.
Atburðir dagsins í dag á Ríkisútvarpinu auka enn á það óöryggi sem fjölmiðlafólk býr við en það er
síst til þess fallið að treysta aðhaldshlutverk fjölmiðla."
Páll Magnússon útvarpsstjóri tilkynnti í dag um fækkun fastráðins starfsfólks hjá RÚV um þrjátíu.
Sautján fengu uppsagnarbréf en starfslokasamningur var gerður við 13 manns. Þegar síðan við þetta bætast uppsagnir á
ráðningasamningum við verktaka hjá RÚV er ljóst að um 50 manns munu nú missa vinnuna. Uppsagnirnar koma ekki síst fram á
fréttastofunni bæði í Reykajvík og á landsbyggðinni. Niðurskurðurinn er sagður koma í beinu framhaldi af skertum fjárframlögum
og þess að útvarpsgjaldið var skert um 10%. Í ályktun sem Félag fréttamanna sendi frá sér fyrir stundu er ábyrgð lýst
á hendur þingmönnum og þar segir m.a. þetta:
"Vegna þeirrar ákvörðunnar Alþingis að hirða tíunda hluta útvarpsgjaldsins hafa nú um fimmtíu starfsmenn Ríkisútvarpsins
misst vinnuna. Sumir voru launamenn en aðrir verktakar, langflestir í fullu starfi og stór hluti vann á Fréttastofunni, bæði í Reykjavík og
úti á landi. Stjórn Félags fréttamanna harmar að nú sé ráðist í þriðja sinn á stuttum tíma að
Fréttastofu Ríkisútvarpsins með blóðugum niðurskurðarhnífi.
Stutt er frá því helsta tekjustofni Ríkisútvarpsins var breytt með lögum frá Alþingi úr því að vera afnotagjald sem
stofnunin innheimti sjálf, yfir í að vera nefskattur sem ríkið innheimtir með öðrum sköttum. Blekið var varla þornað á hinum
nýju lögum þegar Alþingi ákvað að taka hluta nefskattsins til sín. Þessi óheiðarlega framkoma löggjafasamkundunar er með
ólíkindum, einkum þegar haft er í huga að á sama tíma styrkir ríkið aðra fjölmiðla um milljarða króna með
niðurfellingum skulda í gegnum opinbera banka.
Ljóst er að geta Fréttastofunnar til faglegrar og vandaðrar umfjöllunar er verulega sködduð vegna vanhugsaðra ákvarðanna Alþingis og
ríkisstjórnar. Sjaldan hefur þó verið meiri þörf á vönduðum og áræðanlegum fréttum en nú. Stjórn
félags fréttamanna spyr hvort tilgangurinn sé að draga svo mátt úr Fréttastofunni að hún verði ófær um að sinna
lögbundnu og lýðræðislegu eftirlits- og aðhaldshlutverki sínu?
Ábyrgðin hvílir á herðum ríkisstjórnarinnar og Alþingis, sem nú hafa opinberað algert virðingarleysi sitt fyrir
Ríkisútvarpinu, hlutverki þess, starfsfólki og eigendum. Sérhver alþingismaður ber persónulega ábyrgð á
uppsögnunum,“
DV birtir á síðu sinni lista yfir hluta þeirra sem sagt var upp. Sjá hér





