Athugasemdir við tillögu að siðareglum
Þeir sem vilja gera athugasemdir við tillöguna um nýjar siðareglur geta skrifað tölvupóst á netfangið birgirg@unak.is Athugasemdir geta ýmist verið til birtingar hér á vefsíðunni eða ábendingar sem komið verður á framfæri við forustu félagsins og þær síðan teknar upp á aðalfundi eða sérstökum félagsfundi um siðareglurnar.
Tillaga að nýjum siðareglum fyrir Blaðamannafélag Íslands
1. grein
Frumskyldur
Tjáningarfrelsið og miðlun upplýsinga til almennings eru grundvallarforsendur lýðræðislegra samfélagshátta. Það er hlutverk og skylda fagstéttar blaðamanna að segja frá mikilvægum málum og öllu því er varðar almannaheill. Blaðamaður hefur í skrifum sínum sannfæringu sína að leiðarljósi. Hann skal fyrst og síðast gæta hagsmuna lesenda og sóma blaðamannastéttarinnar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur í nafni starfs síns. Blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir fagstétt hans, hlutverk stéttarinnar og þau gildi sem hún stendur fyrir. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í störfum sínum og skiptum við starfsfélaga.
2. grein
Persónuleg ábyrgð
Blaðamanni er ljós persónuleg ábyrgð á öllu sem hann setur fram. Hann vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og byggir frásögn sína á staðreyndum og upplýsingum sem hann veit hvaðan eru komnar. Blaðamaður falsar ekki gögn, né dregur undan mikilsverðar upplýsingar og hann dregur ekki ályktanir umfram það sem forsendur gefa tilefni til. Blaðamenn leitast við að leiðrétta það hafi þeir birt upplýsingar sem eru rangar eða skaðlega ónákvæmar.
3. grein
Trúnaður
Trúnaður blaðamanna er við lesendur og almenning. Trúnaðartraust milli blaðamanns og heimildarmanns er einn af hornsteinum tjáningarfrelsisins og blaðamaður virðir trúnað við heimildarmenn sína.
4. grein
Tillitssemi
Blaðamaður sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um
sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.
Blaðamenn skulu hafa hliðsjón af því í viðkvæmum og vandasömum málum hvort almennt öryggi borgaranna, sérstakir hagsmunir
almennings eða almannaheill krefst nafn- og/eða myndbirtingar. Sérstök aðgát skal höfð í umfjöllun um málefni barna, sjúklinga og
annarra sambærilegra hópa. Í frásögnum af dóms- og refsimálum skulu blaðamenn virða þá meginreglu laga að hver maður er
talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.
5. grein
Samfélagsleg ábyrgð
Blaðamaður gerir sér grein fyrir áhrifavaldi fjölmiðla og mikilvægu lýðræðislegu hlutverki sínu. Hann reynir því að draga úr hættunni á að fyrir tilverknað fjölmiðla aukist mismunun á grundvelli kynþáttar, kyns, kynhneigðar, tungumáls, trúarskoðana eða sannfæringar.
6. grein
Heiðarleiki
Blaðamaður varast að lenda í hagsmunaágreiningi, til dæmis með því að flytja fréttir eða frásagnir af fyrirtækjum
eða hagsmunasamtökum þar sem hann tengist. Það telst mjög alvarlegt brot þiggi blaðamaður mútur eða hafi í hótunum vegna birtingar
efnis eða ef hann verður uppvís að ritstuldi, grófri mistúlkun, rógmælgi eða tilhæfulausum ásökunum.
Blaðamaður gætir þess að rugla ekki saman ritstjórnarlegu efni, sem hefur augljóst upplýsinga- og fræðslugildi annars vegar og
auglýsingum eða öðrum sérhagsmunum í myndum og/eða máli hins vegar.
7. grein
Viðbrögð við broti á siðareglum
Hver sá sem telur að blaðamaður haf brotið framangreindar reglur og á hagsmuna að gæta, getur kært ætlað brot til Siðanefndar BÍ
innan 2ja mánaða frá birtingu enda sé mál vegna birtingarinnar ekki rekið fyrir almennum dómstólum á sama tíma.
Áður skal hann þó leita leiðréttingar mála sinna hjá viðkomandi fjölmiðli. Þó getur Siðanefnd úrskurðað
um undanþágur frá leiðréttingarkröfum vegna annarra aðstæðna.
Siðanefndin tekur kæruna fyrir á fundi innan viku og kveður upp rökstuddan úrskurð svo fljótt sem kostur er.
Taki Siðanefnd kærumál til efnislegrar athugunar skal hún kanna heildarumfjöllun um málið í hinum kærða fjölmiðli. Kærða
skal gefinn kostur á að gera grein fyrir sjónarmiði sínu.
Siðanefnd greinir brot í fokka eftir eðli þeirra:
a) ámælisvert
b) alvarlegt
c) mjög alvarlegt
Úrskurði Siðanefndar verður ekki áfrýjað. Úrskurð Siðanefndar ásamt rökstuðningi skal birta í heild í
Félagstíðindum BÍ svo fljótt sem verða má. Úrskurð Siðanefndar skal senda viðkomandi fjölmiðli við fyrsta hentugleika og
með ósk um birtingu ef um brot samkv. skilgreiningu b) og c) er að ræða. Þremur dögum seinna skal senda úrskurðinn öðrum
fjölmiðlum.
Meginniðurstaða nefndarinnar skal birt orðrétt. Við framsetningu frétta af úrskurðum Siðanefndar sýna blaðamenn alla þá
aðgát sem reglur þessar ætlast til. sbr. 1. og 2. grein að framan.
Nú telur stjórn BÍ að gengnum úrskurði Siðanefndar að brot sé svo alvarlegt að frekari ráðstafana sé þörf og getur
hún þá borið undir félagsfund tillögu um vítur á viðkomandi blaðamann enda sé þeirrar ætlunar getið í
fundarboði.
Nú bera ummæli ekki með sér hver sé höfundur þeirra eða viðkomandi blaðamaður er utan BÍ og gengur þá
úrskurður svo sem ritstjóri og/eða ábyrgðarmaður eigi beina aðild að. Þótt enginn þessara aðila sé í BÍ
getur Siðanefnd allt að einu lagt fram rökstutt álit um kæruefni.





