:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

B.Í. skoðar fjölmiðlafrumvarpið betur

Ný stjórn Blaðamannafélags Íslands sent menntamálanefnd Alþingis erindi þar sem boðuð er frekari umsögn um fjölmiðlafrumvarpið sem nú liggur fyrir, en í fyrri umsögn félagsins um frumvarpið var áskilnaður um að félagið kynni að koma með frekari athugasemdir.  Í erindinu kemur fram að stjórn BÍ telur að frumvarpið feli í sér mjög viðamiklar breytingar á starfsumhverfi fjölmiðla og blaðamanna í mörgum atriðum. Því sé óumflýjanlegt að gera ítarlega úttekt á efnisatriðum frumvarpsins í samanburði við fyrri frumvörp og það sem best gerist annars staðar í þessum efnum. 

Einnig segir að markmið fumvarpsins hljóti að vera að efla tjáningarfrelsið svo sem nokkur kostur sé og þar með að „tryggja sjálfstæði blaðamanna að öllu leyti og leggja grunn að fjárhagslegu sjálfstæði fjölmiðla í landinu svo þeir og þeir sem þar starfa geti sinnt hlutverki sínu til hins ýtrasta í hinni lýðræðislegu umræðu.“
Stjórn B.Í. vonast til að þessi úttekt geti verið tilbúin um mitt sumar og í síðasta lagi fyrir haustið og að hún geti aukið líkur á að lagaumhverfi blaðamanna og fjölmiðla verði þannig að það tryggi lýðræðislega umræðu í landinu.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning