:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Bild í þrívídd!

Á laugardaginn, 28. ágúst, kemur úr mjög sérstök útgáfa af þýska blaðinu Bild en þá verða allar myndir og auglýsingar í blaðinu í þrívídd.  Blaðið kemur út í 3,8 milljón eintaka daglega og mun það gefa kaupendum þrívíddargleraugu með blaðinu svo hægt sé að njóta þrívíddarinnar til fulls. Textinn í blaðinu verður hins vegar með hefðbundnum hætti.  Í netútgáfu blaðsins verða svo fleiri atriði í boði í þrívídd þennan dag s.s. ýmis myndskeið og myndir.  Tilgangurinn með þessu er fyrst og fremst að vekja athygli á blaðinu, en ýmis blöð hafa áður farið út í herferð af þessu tagi s.s. blaðið La Derniere Heure í Belgíu og The Sun í Bretlandi. Þá hefur verið bent á að þarna sé líka verið að prófa og þróa nýja tækni og fjölbreytni í prentmiðlum, sem hugsanlega gætu hjálpað þeim í samkeppni við net- og ljósvakamiðla.

Sjá einnig hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning