:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Blašamannaveršlaun 2009

Hér á eftir má sjá tilnefningar til verðlunanna 2009 og síðan nöfn sgurvegara og rök dómnefndar.

 Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna  2009

Rannsóknarblaðamennska ársins 2009:
Guðný Helga Herbertsdóttir, Stöð 2, fyrir fjölmargar áhugaverðar fréttir um skattalega meðferð mála í tengslum við fjármálakreppuna og fyrir fjölbreyttar og upplýsandi fréttir um hrunið hér heima og erlendis.
Ingi F. Vilhjálmsson, DV, fyrir skrif um kúlulán og fjölmargar afhjúpandi fréttir um viðskiptahætti auðmanna og stórfyrirtækja í aðdraganda og eftirmála hrunsins.
Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu) fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umsvifamikil viðskipti stórfyrirtækja.

Besta umfjöllun ársins 2009:
Magnús Halldórsson, Ragnar Axelsson ásamt Ágústi Inga Jónssyni, Morgunblaðinu, fyrir skilmerkilega, myndræna og upplýsandi umfjöllun sem varpaði ljósi á erfitt ástand  á fasteignamarkaði  á Íslandi.
 Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB.
Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir skilmerkilegan og ítarlegan fréttaskýringarflokk um endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Blaðamannaverðlaun ársins 2009:
Gunnar Karlsson, Fréttablaðinu fyrir „Spottið“ og Halldór Baldursson, Morgunblaðinu, fyrir „Halldór“, áhrifamiklar teikningar þar sem brennandi samfélagsmál eru sett í hárbeitt en um leið skoplegt ljós.
Jóhann Hauksson, DV, fyrir leiðandi umfjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál.
Þóra Arnórsdóttir, Kastljósi RÚV, fyrir mjög vel undirbúin og útfærð viðtöl við innlenda og erlenda sérfræðinga um ýmis málefni sem hátt bar í þjóðfélagsumræðunni.

 

 

Verðlaunahafar og rök dómnefndar

Rannsóknarblaðamennska ársins 2009
Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu), fær verðlaunin fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umfangsmikil viðskipti stórfyrirtækja. Fjármál og viðskipti voru helstu fréttamál ársins 2009 á Íslandi og í fjölþættum og vönduðum skrifum sínum tókst Þórði Snæ aftur og aftur að draga fram í dagsljósið atriði sem skiptu miklu fyrir umræðuna. Þetta á meðal annars við um fréttir hans af aflandsstarfsemi íslenskra fyrirtækja, skrif hans um endurskipulagningu Exista og starfsemi Milestone svo dæmi séu tekin. Þórður hefur lagt mikið af mörkum við að greiða úr þeim viðskiptaflækjum sem ofnar voru á „uppgangsárunum“ en áttu síðar sinn þátt í hruninu. Það er íslenskri  blaðamannastétt mikilvægt að eiga ungt og áhugasamt fólk sem er duglegt að grafa upp heimildir og gefst ekki upp.

Besta umfjöllun ársins 2009
Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fær verðlaunin fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB. Fréttaskýringar og fréttaflutningur Lóu sýnir hve góð tök hún hefur á miðlinum.Þau nýtir hún til að sinna hinu mikilvæga hlutverki blaðamannsins, það er að varpa ljósi á flókin fréttamál svo þau verða áhorfandanum auðskiljanleg. Hún er óhrædd við að fara ótroðnar slóðir í efnistökum og framsetning hennar er myndræn og skýr. Efnistök hennar eru jafnframt  nákvæm, í jafnvægi og sanngjörn, og útkoman verður því blaðamennska sem er til fyrirmyndar.

Blaðamannaverðlaun ársins
Jóhann Hauksson, DV, fær verðlaunin fyrir leiðandi umfjöllun um fall ríkisstjórnarinnar og þýðingarmiklar fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál. Jóhann er fagmaður með mikla og víðtæka reynslu og sambönd. Þessi staðreynd er sérstaklega mikilvæg á umbrotatímum í þjóðfélaginu þegar óvissa og ringulreið virðist ríkja. Jóhanni hefur tekist í fjölþættum skrifum sínum að útskýra og greina þjóðfélagsástandið, sýna lesendum undir yfirborðið og tengja saman hulda þræði. Á löngum ferli hefur Jóhann áunnið sér traust heimildarmanna og virðingu lesenda sem ásamt reynslu hans og þekkingu gera skrif hans um þjóðfélagsmál ómissandi í samfélagsumræðunni

 

 

 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskrįning