:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Bréf í Mecom hækka eftir sölu á Edda Media

Thor Eriksen stjóri hjá  A-pressen við blaðastanda með titlum útgáfunnar.
Thor Eriksen stjóri hjá A-pressen við blaðastanda með titlum útgáfunnar.

Hlutabréf í fjölmiðlarisanum Mecom tóku kipp í gær eftir að staðfest var að samsteypan hefði selt frá sér fjölmiðlafyrirtækið Edda Media, en það fyrirtæki er stórtækt á norskum blaðamarkaði og gefur þar úr 36 fréttablöð. Kaupandi Edda Media var samkeppnisfyrirtækið A-pressen í Noregi, sem á og rekur 49 fréttablöð. Kaupverð Edda Media er um 1,7 milljarður norskra króna, en þreifingar um þessi viðskipti urðu opinberar seint í síðasta mánuði. Öll eru þessi viðskipti háð fyrirvara um samþykki hluthafa og því að samkeppnisyfirvöld og fjölmiðlaeftirlitið fallist á þau.  A-pressen og Mecom hafa samhliða þessu gefið til kynna að samstarf kunni að verða með fyrirtækjunum á sviði fjárfestinga og vöruþróun í stafrænni miðlun.

Sjá um kaupin hér og hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning