:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Breytingar á ritstjórn Fréttablaðsins

Breytingar hafa verið gerðar á ritstjórn Fréttablaðsins þannig að þeir sem starfað hafa við ritun kynningarblaða og blaðhlutans Allt, munu ekki lengur tilheyra ritstjórn blaðsins og flokkast sem blaðamenn. Þess í stað munu þessir starfskrfatar fá starfsheitið textahöfundar og heyra undir auglýsingadeild.
Í þessu felst sú hugmynd að þeir sem skrifa þessi blöð eru ekki lengur bundnir af siðareglum blaðamanna, sem m.a. kveða á um að ekki megi blanda saman ritstjórnarefni og efni sem hefur augljóst upplýsinga og fræðslugili annars vegar og auglýsingaefni hins vegar.  Samkvæmt viðtali við Ólaf Stephensen á dv.is er þetta til þess fallið að aðgreina betur auglýsingar og ritstjórnarefni. Miðað við það er þá ljóst að blaðið Allt telst ekki til ritstjórnarefnis heldur auglýsinga, en það hefur til þessa ekki verið ljóst hvoru megin hryggjar það hefur verið á meðan kynningarblöðin hafa klárlega verið auglýsingadeildarinnar. 
Sjá einnig hér


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning