:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Cavling veršlaunin fara til blašamanna į Information

Veršlaunablašamennirnir Ulrik Dahlin (t.v.) og Anton Geist (t.h.)
Veršlaunablašamennirnir Ulrik Dahlin (t.v.) og Anton Geist (t.h.)

Virðulegustu blaðamannaverðlaun Danmerkur ganga að þessu sinni til tveggja blaðamanna sem starfa hjá Information útgáfufélaginu í Danmörku. Verðlaunahafarnir eru blaðamennirnir Anton Geist og Ulrik Dahlin en þeir skrifuðu greinaflokk um flóttamenn sem með ólögmætum hætti fengu höfnun á ríkisfang í Danmörku. Umfjöllunin leiddi meðal annars til þess að Birthe Rønn Hornbech varð að víkja sem ráðherra innflytjendamála 8. mars 2011.

Danska blaðamannafélagið (Dansk Journalistforbund) hefur veitt verðlaunin allt síðan 1944 og telst það mikil heiður meðal danskra blaðamanna að fá þau. Verðlaunin eru kennd við blaðamanninn og rithöfundinn Henrik Cavling (1858-1933) og eru árlega veitt þeim blaðamönnum sem sýnt hafa frumkvæði, áræðni og getu við að koma vandasömu efni til skila. Þess má geta að dagblaðið Information var stofnað 5. maí 1945, daginn eftir að Danir höfðu endurheimt sjálfstæði sitt eftir hersetu nasista.

Information birti fyrstu greinina um flóttamennina 11. janúar 2011. Síðan hafa þeir Anton Geist og Ulrik Dahlin skrifað yfir 100 greinar um efnið og afhjúpað meðhöndlun mála hjá yfir 500 innflytjendum. Umfjöllunin hefur sýnt að stjórnsýslan í Danmörku hefur kerfisbundið brotið rétt á fólkinu.
Upphaf umfjöllunarinnar má rekja til þess að nafnlausir heimildarmenn innan danska stjórnkerfisins greindu þeim Anton Geist og Ulrik Dahlin frá því að ekki hefði verið farið rétt að við afgreiðslu beiðna frá ríkisfangslausu fólki sem fæddist í Danmörku. Beiðnunum hefði verið hafnað þrátt fyrir skyldu til að samþykkja þær samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna frá 1961 en samningurinn hafði verið fullgiltur í Danmörku árið 1977. Dönsk stjórnvöld höfðu verið  upplýst um skyldu sýna um að fara að SÞ-samningnum strax árið 2002. Þrátt fyrir lögfræðileg álit um þessa skyldu hélt ráðuneytið áfram að hafna beiðnum um ríkisborgararétt og á árunum 2004 og 2007 var að minnsta kosti átta manns neitað um réttinn.

,,Fólk án ríkisfangs er varnarlaus hópur og réttindi þessu eru oft fótum troðin. Það er því  nauðsynlegt fyrir fjölmiðlana að standa vörð um réttindi þeirra,” sagði Anton Geist í viðtali við Information þegar valið var kunngert.

Verðlaunin verða afhent á morgun við hátíðlega athöfn.

Fimm umfjallanir voru tilnefndar til verðlauna, auk þeirra Anton Geist og Ulrik Dahlin voru það eftirfarandi blaðamenn:

Line Holm Nielsen og Mads Nissen, Berlingske, fyrir umfjöllun í texta og myndum um danska konu sem reyndi að bjarga alvarlega veiku nepölsku barni.
Claus Blok Thomsen, Michael Lund, Anders Legarth Schmidt og John Hansen, Politiken, fyrir greinaröðina ,,Dauðþreyttir flugmenn” (Dødtrætte piloter) um skort á flugöryggi.
Thomas Gösta Svensson og Kristian Kornø, Ekstra Bladet, fyrir greinar um lyfjamisnotkun.
Morten Halskov og Asger Havstein Eriksen, Fagbladet 3F, fyrir umfjöllun um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskrįning