:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Dagblöð ómissandi í Japan

Í nýrri könnun sem gerð var af samtökum blaðaútgefenda og ritstjóra í Japan kemur í ljós að dagblöð eru órjúfanlegur hluti af daglegu lífi flestra Japana. Í könnuninni kemur fram að um 90% svarenda sögðust lesa dagblöð á hverjum degi og 50,2% sögðu að dagblöð væri ómissandi uppspretta upplýsinga. Þó niðurstöður könnunarinnar hafi verið birtar nýlega eru nokkrir mánuðir síðan hún var gerð, en hún var lögð fyrir í október í fyrra og var úrtakið um 4.100 manns. Þetta er talsvert á skjön við kannanir annars staðar í heiminum sem hafa nær allar sýnt að mikilvægi dagblaða fari minnkandi.
Sjá einnig hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning