Dani fęr ašalveršlaun Lorenzo Natali veršlaunanna

Lorenzo Natali blaðamannaverðlaunin voru afhent 17 verðlaunahöfum víðs vegar að úr heiminum í Brussel fyrir helgina, en í ár var
það Daninn Tom Heinemann sem fékk aðalverðlaunin. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi blaðamennsku á sviði mannréttinda,
lýðræðis og þróunar og tilnefningar til verðlaunanna voru um eða yfir 1300 talsins. Verðlaunin eru nú veitt í 20. sinn og
það er Framkvæmdastjórn ESB í samstarfi við samtökin Fréttamenn án landamæra, sem stendur að baki þeim.
Framkvæmdastjóri þróunarmála hjá ESB, Andris Piebalgs, sagði þegar hann ávarpaði verðlaunahafana við afhendinguna í Brussel
að meðalhóf í stjórnsýslu, lýðærði, mannréttindi og frjálsir fjölmiðlar væru lykilforsendur fyrir
efnahagsþróun í heilminum almennt. Evrópa væri búin að skuldbinda sig til að ýta undir þessi gildi um allan heim, en gerði sér
mjög góða grein fyrr því að þessi gildi gætu ekki ná fram nema fjölmiðlar hefðu tækifæri til að ljá öllum
borgurum rödd og skrásetja samfélagsþróunina á réttan hátt.
Sérstök dómnefnd undir forsæti Toby Vogel ritstjórnarfulltrúa á European Voice fjallaði um tilnefningarnar og nam heildarferðlaunafé 60
þúsund evrum, en það skiptist í marga flokka, bæði eftir landsvæðum og tegundum miðla.
Aðalverlaunin í ár (The Grand Prize) fékk Daninn Tom Heinemann fyrir heimildamynd sína um smálán. Í myndinni sem sýnd hefur verið
í yfir 14 löndum er farið í saumana á því hver áhrif smálána svokallaðra til fáæks fólks hefur í raun og
veru haft, en þessi tegund lána átti fyrir nokkrum árum að vera mikið lausnarorð í fátæktarumræðunni.
Sjá vinninghafa hér.
Sjá heimildamynd Tom Heinemanns hér:
Hluti 1
Hluti 2
Hluti 3
Hluti 4





