EFJ fagnar skýrslu um skapandi starfsgreinar
Almennt - 02.ágúst 2010

Evrópusamban blaðamanna (EFJ) hefur sent Framkvæmdastjórn ESB viðbrögð sín við stefnumarkandi vinnuskýrslu (Green Paper), en þau
stefnudrög miða að því að finna leiðir til að leysa úr læðingi skapandi og menningarleg starfsgreinar með því að búa
til ýmis konar tilhliðranir og hvata. Megin stefnan miðast við að stefnan byggi á hugmyndum frá grasrótinni og að sköpuð séu
skilyrði fyrir fjölbreytni og frjálst flæði hugmynda og samskipta um alla álfuna. EFJ fagnar þessum atriðum sérstaklega og bendir einnig á
að brýnt sé í þessu sambandi að standa vörð um höfundarétt.
Viðbrögð EFJ í heild má sjá hér.





