Ég mótmæli

Ég mótmæli því harðlega sem félagsmaður í BÍ að fyrst og fremst persónulegur ágreiningur meðal leiðandi
fólks í félaginu hafi leitt til þeirrar undarlegu stöðu að framkvæmdastjóri félagsins fer í formannsslag við sitjandi
formann.
Ég áfellist alla í forystunni, kjörna sem ráðinna, fyrir að hafa leyft þessum málum að þróast á þennan hátt,
í stað þess að leysa málin með rökræðu og skynsemi að vopni. Ekkert er að því að félagsmenn hafi valkosti á
aðalfundi, eins og fyrir ári, en aðdragandi þessa formannskjörs er á engan hátt eðlilegur og flestallir félagar algerlega úti í
kuldanum hvað raunverulegar og áþreifanlegar ástæður ágreiningsins varðar.
Aðallega harma ég að djúpstæður persónulegur ágreiningur skuli hafa komið upp rétt fyrir aðalfund, með kosningastappi sem
líklegt er að taki til sín allt of mikla orku, á kostnað brýnna málefna sem varða stétina mun meir en nákvæmlega hver sé
formaður. Ég á við úrvinnsluna á þætti fjölmiðla í rannsóknarskýrslunni, ég á við
fjölmiðlafrumvarpið sem fyrir Alþingi er og ég á við afgreiðslu á tillögum endurskoðunarnefndar um breyttar siðareglur.
Við þetta má bæta bágan rekstrargrunn fjölmiðla, atvinnuleysi og atgervisflótta. Allt eru þetta brýnni mál en hitt,
hvort framkvæmdastjóri og formaður eigi skap saman, hvort formaðurinn sé frekur/ákveðinn eða hvort framkvæmdastjórinn er með þetta
frekar en hitt í laun.
Því meir sem ég hef hlerað þennan ágreining þeim mun fjær virðist kjarni hans vera. Aðra röndina er talað um
hátíðleg atriði eins og „starfsaðferðir og stefnumörkun“, en hina röndina er talað um pólitísk tengsl og
yfirlýsingar, upplýsingaleynd og frekju. Ég get ekki fallist á að núverandi formaður sé í einhverri annarlegri pólitískri
stöðu. Ég hef heldur ekki neina vitneskju um annað en að framkvæmdastjórinn hafi almennt og yfirleitt staðið sig vel í sínu starfi.
Ég velti fyrir mér hvort sýnilegar ávirðingar á báða kanta séu ekki útbólgnar og er furðu lostinn yfir því
að lýðræðisleg vinnubrögð, skynsamleg og rökleg umræða og lipur mannleg samskipti hafi ekki komið í veg fyrir að ágreiningurinn
brytist svo út, alvarlegur og á síðustu stundu fyrir aðalfund.
Það er vont mál að öllum nánari málsatvikum skuli vísað til aðalfundarins sjálfs, að í millitíðinni tali menn
í hálkveðnum vísum og félagsmenn sitja uppi með ónógar upplýsingar fram að sjálfri atkvæðagreiðslunni. Ég
geri kröfu til þess að ekki síðar en hádegi aðalfundardagsins birtist skilmerkilegar greinar eftir frambjóðendurna tvo á press.is. Ég
teldi brýnt að frambjóðendurnir geri grein fyrir ágreiningsmálunum, en einnig vil ég sem félagsmaður sjá hvort einhver munur sé
á formannsframbjóðendunum í afstöðunni til fyrrnefndra brýnni mála; viðbragða við rannsóknarskýrslunni,
fjölmiðlafrumvarpsins, breyttra siðareglna og stöðu fjölmiðla og stéttarinnar.
Friðrik Þór Guðmundsson





