Eldri Ameríkanar flykkjast á samskiptavefi

Svo virðist sem Bandaríkjamenn sem eru fimmtugir eða eldri og nota tölvur á annað borð flykkist nú inn á samskiptavefi s.s. Facebook. Þetta
kemur fram í nýrri könnun sem gerð var fyrir PEW- ameríska net og lífstílsverkefnið. Könnunin náði til 2.252
Bandaríkjamanna 18 ára og eldri og í ljós kom að samskiptamiðlar virðast vera að verða ákjósanlegur auglýsingamiðill fyrir
þá sem vilja ná til eldri netnotenda. Í ljós kemur í könnuninni að aukningin í notkun einhvers konar samskiptamiðla í
aldurhópnum 50 ára og eldri er frá því að vera 22% hópsins í apríl 2009 og upp í 42% af hópnum í maí á
þessu ári. Um 10 % af þessum aldurshópi notar Twitter og Facebook eða aðra samskiptamiðla sem byggja á að setja inn „statusa“
eða „stöðu“ til þess ýmis að setja sjálft inn „stöðu“ eða lesa „stöðu“ annarra.
Sjá meira hér





