Umsátursástand um rúmenska blaðamennsku

„Rúmensk blaðamennska býr nú við umsátursástand vegna kreppunnar og græðgi atvinnurekenda. Framtíð fagsins er í verulegri hættu og eigendur og stjórnvöld verða að grípa til aðgerða nú þegar til að slá skjaldborg um faglega blaðamennsku og til að takast á við þá kreppu sem steðjar að lýðræði og frelsi fjölmiðla,“ segir Aidan White, framkvæmdastjóri EFJ.
Cristi Godinac, sem er formaður Blaðamannasambands Rúmeníu, lýsti ástandinu þannig að rúmensk blaðamennska stæði nú með „annan fótinn í gröfinni“ og telur að skerðing á samningsbundnum kjörum og upptöku verktakagreiðslna muni hafa mjög skaðvænleg áhrif á fagmennsku í greininni, enda sé verið að opna fyrir geðþóttaákvarðanir varðandi uppsagnir og ráðningar.
Í skýrslunni eru stjórnvöld einnig gagnrýnd fyrir nýjan skatt á verktakagreiðslur, sem tekinn var upp í sumar, en það kemur enn frekar niður á þeim blaðamönnum sem neyðast til að sætta sig við slíkar launagreiðslur.
EFJ hefur fordæmt þetta ástand og þessar aðgerðir atvinnurekenda, sem gangi hart að blaðamönnum og skilji ekki eftir neitt skjól fyrir þá. Í samþykkt Blaðamannasambands Rúmeníu er þessu lýst þannig að „því miður verði flestir blaðamenn að sætta sig við þessar breytingar, því þeir þurfi að borga sín dagleg útgjöld, húsnæði og mat. En í leiðinni horfa þeir framhjá því að hægt er að svipta þá þessum verktakagreiðslum fyrirvaralaust.“
„Það er ekki bara í Rúmeníu sem blaðamenn þurfa að þola svívirðilegar aðför frá gráðugum atvinnurekendum,“ segir Arne König formaður EFJ. „Efnahagskreppan í bland við tækniþróunina eru nú skálkaskjólið sem víða er notað er til að ráðast að kjörum og stöðu blaðamanna. Um leið er verið að vega að rótum lýðræðisins í Evrópu,“ segir König ennfremur.
EFJ er nú að skoða möguleikann á að senda sendinefnd til Rúmeníu til að kanna frekar stöðu mála þar.
Sjá einnig hér





