Formannsmolar
Félagafréttir - 16.nóvember 2011
Sæl! Þriðji morgunfundur BÍ verður haldinn næstkomandi miðvikudag 23. nóvember og hefst klukkan 8.30 í Síðumúla 23, 3. hæð.
Þar mun Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fjalla um mismununartilskipanir Evrópusambandsins, sem banna mismunun á grundvelli kynþáttar, uppruna, fötlunar, kynhneigðar, trúar- og lífsskoðana og aldurs. Í velferðarráðuneytinu er nú unnið að löggjöf til að innleiða tilskipanirnar í landsrétt. Skýrir Margrét meðal annars hugtökin bein mismunun, óbein mismunun, áreitni og sanngjörn aðlögun, ásamt því að skýra reglur um sönnunarbyrði, viðurlög við mismunun o.fl.Þá mun Helga Ólafs doktorsnemi fjalla um hlutverk og stefnur fjölmiðla í fjölmenningarlegum samfélögum og hvernig umfjöllun um innflytjendur hefur þróast undanfarin ár, m.a. með tilliti til efnisþátta og þátttöku innflytjenda í fjölmiðlaumræðu.
Gert er ráð fyrir að fundinum verði lokið klukkan 10.00. Vinsamlegast tilkynnið þáttöku á þetta netfang vegna
kaffimála.
Kveðja,
Hjálmar





