Mótmæla framferði lögreglu gagnvart blaðamönnum

Forsvarsmenn nokkurra fjölmiðlafyirtækja sendu í gær borgaryfivöldum í New York formlega kvörtun vegna framgöngu lögreglunnar gagnvart blaðamönnum sem voru að fjalla um mótmælin “Occupy Wall Street” í borginni í síðustu viku. Fjölmiðlarnir hafa samhliða óskað eftir fundi með borgaryfirvöldum þar sem þeir fái tækifæri til að ræða áhyggjumál sín vegna þessa. Talsmenn fjölmiðlafyrirtækjanna segja að lögreglan í borginni hafi útilokað blaðamenn frá að fylgjast með því þegar hún rýmdi tjaldbúðir í Zuccotti garði á neðanverðri Manhattan og að hún hafi beitt blaðamenn valdi og handtekið suma þeirera þegar þeir voru að reyna að fylgjast með atburðum - í raun að vinna vinnuna sína. Þannig segir í bréfi fjölmiðlanna til Paul Brownes forsvarsmanns lögreglunnar í borginni (NYPD) að “lögregluaðgerðirnar í síðustu viku hafi verið fjandsamlegri blaðamönnum en menn reki minni tilað þær hafi nokkru sinni áur verið”. Fleiri aðilar, s.s. samtök blaðamanna og ýmis mannrétindasamtök hafa lýst svipuum áhyggjum og þegar hefur verið tilkynnt um stofnun sérstaks eftirlitshóps ólíkra aðila til að fylgjast með samskiptum lögreglu og fjölmiðla.
Sjá einnig hér




