Enginn titill
Obama Bandaríkjaforseti og lykilþingmenn úr Demókrataflokknum hafa komist að samkomulagi um drög að frumvarpi sem færir blaðamönnum aukna vernd gegn fjársektum og fangelsunum fyrir að neita að gefa upp heimildarmann. Frumvarpið gengur undir nafninu „lög um fjölmiðlaskjöld“ og samkvæmt því verður búinn til eins konar fjölmiðlaskjöldur sem dómarar geta brugðið fyrir blaðamenn sem stefnt hefur verið ef þeir telja að upplýsingarnar sem um ræðir snerti í raun almannaheill. Þetta á þá við í tilfellum þar sem dómari metur það svo að það séu meiri hagsmunir að upplýsa um tiltekin mál heldur enn þeir hagsmunir sem felast í því að fyrir ríkisvaldið að upplýsa um leka á trúnaðarupplýsingum. Samkvæmt frumvarpinu yrði einnig sambærileg vernd fyrir þá sem eru frístundabloggarar sem stunda það að afla fréttnæmra upplýsinga og dreifa þeim.
Sérfræðingar telja full snemmt að meta hvort pakki af þessu tagi mun komast í gegnum þingið, en líkur á svona fjölmiðlaskildi eru taldar hafa minnkað í september síðastliðnum þegar bæði saksóknarar og leyniþjónustan höfðu viðrar miklar efasemdir um gildi slíkrar ráðstöfunar. Sjá einnig hér





