:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Fagleg blaðamennska aldrei mikilvægari

Frá alþjóðlegu fjölmiðlaþingi Deutche Welle
Frá alþjóðlegu fjölmiðlaþingi Deutche Welle

Í niðurstöðum umfangsmikils fjölmiðlaþings sem þýska alþjóðafréttaþjónustan Deutche Welle stóð fyrir í Bonn fyrir helgina (DW Global Media Forum)  segir að gríðarlega mikilvægt sé að efla faglega blaðamennsku til að bregaðst við hinum miklu breytingum, sem orðið hafa í fjölmiðlaumhverfinu. Á þessu þingi voru  1.500 fjölmiðlaeigendnur, fræðimenn og fleiri frá um 95 löndum og var umræðuefnið loftslagsbreytingar og hvernig breytt staða fjölmiðla og upplýsingastreymis í samfélaginu og sú áskorun sem þessi breyting er fyrir faglega blaðamennsku hefur áhrif á þá umræðu. Sérstaklega kom fram í innleggi  frá framkvæmdastjóra sjónvarsdeildar Deutcehe Welle, Christoph Lanz, að í „flóði upplýsinga“  verði fjölmiðlarnir „að vera í stakk búnir til að vega og meta heimildagildi i upplýsinga“ og færa almenningi „áreiðanlega og  trúverðugar upplýsingar“.
Sjá frekari umfjöllun hér og hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning