:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Fáir vilja borga fyrir blað á vefnum

Fæstir virðast vera tilbúnir til að borga fyrir að geta lesið uppáhalds dagblaðið sitt á netinu samkvæmt könnum sem Harris Interactive greiningarfyrirtækið hefur gert og birt var í gær.  Eins og áður hefur verið fjallað um hér á Press.is, þá hafa ýmis dagblöð horft til netsíðna sinna í leit að auknum tekjum eftir að þrengt hefur að í rekstrinum. Flest blöð bjóða enn upp á ókeypis ritstjórnarefni á vefnum en sífellt fleiri hafa farið út í að rukka fyrir áskrift.

Könnun Harris stofnunarinnar gefur hins vegar til kynna að slík tekjuöflun af netnotkun kunni að koma í bakið á útgáfufélögunum. Um 77% aðspurðra sögðust ekki myndu borga fyrir að geta lesið dagblaðsfréttir á vefnum. Auk þess kom í ljós að um stór hluti þeirra sem þó sögðust tilbúin til að greiða fyrir áskrift voru einungis tilbúnir til að borga tiltölulega lítið fyrir mánaðaráskrift og aðeins 5% aðspurðra voru í raun tilbúnir til að borga meira en 10 dollara í áskrift á mánuði. Þetta er langt undir því sem áskriftir að dagblöðum eru að skila. Í könnuninni kom einnig fram – nokkuð sem dagblöð um allan heim þekkja mæta vel – að sífellt færri lesa fréttir í prentmiðlum og sífellt fleiri lesa fréttir á netinu. Aðeins um 43% aðspurðra lásu blað daglega, annað hvort á netinu eða í pappírsformi.  Um 10% sögðust aldrei lesa dagblað. Og eins og iðulega hefur komið fram í lestrarkönnunum, þá lesa yngri aldurshópar minna en þeir eldri.
Sjá einnig hér og könnunina sjálfa hér



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning