:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Fjölmiðlafríríkið - hádegisverðarfundur

Félag stjórnmálafræðingaefnir til opins hádegisfundar í samstarfi við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna. Fundurinn verður föstudaginn 5. mars í stofu 101 í Lögbergi í Háskóla Íslands.  Hann hefst klukkan 12:00 og lýkur klukkan 13:00. Á fundinum verða ræddar hugmyndir um að gera Ísland að griðastað alþjóðlegrar fjölmiðlunar, fjórða valdið og tengsl frjálsrar fjölmiðlunar og lýðræðis. 
Kynnt verður tillaga til þingsályktunar um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi verndun tjáningar- og upplýsingafrelsis sem nú er í meðförum Alþingis.

Að loknum stuttum framsögum verða umræður og tekið verður við spurningum úr sal.

Eftirfarandi verða gestir í pallborði:
Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður og 1. flutningsmaður þingsályktunartillögu.
Elva Björk Sverrisdóttir, varaformaður Blaðamannafélags Íslands.
Julian Assange, blaðamaður og stofnandi vefsíðunnar Wikileaks.
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.
Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur.
Fundarstjóri er Svavar Halldórsson formaður félags stjórnmálafræðinga.
Allir velkomnir



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning