:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Fjölmiðlun ekki sama og blaðamennska

Í nýútkomnu fréttabréfi EFJ, Evrópusambands blaðamanna, fjallar leiðarinn um framtíð blaðamennskunnar. Þar er meðal annars vitnað til þess að á nýlegu þingi blaðamannafélaga ríkja við Miðjarðarhafið og í Austur Evrópu hafi aðal umræðuefnið verið hvernig hægt væri að beina gagnrýnu kastljósi að þeim fjölmiðlafyrirtækjum sem nú segja upp fólki og lækka gæðakröfur til þess að halda uppi hagnaðarhlutfalli í rekstri og fyrirgera í leiðinni hugmyndum um blaðamennsku í þágu almannaheilla.  Bent er á að í dag sé ekki hægt að setja samasemmerki á milli fjölmiðlunar og blaðamennsku. Þessi málefni verða líka í forgrunni á heimsþingi Alþjóða blaðamannasambandsins sem haldið verður í Cadiz á Spáni í næstu viku, dagana 24.- 28 maí, undir yfirskriftinni „Blaðamennska inn í framtíðina“ (Journalism in Touch with the Future).

Fréttabréf EFJ (pdf)



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning