Forsķša įkvešin meš heilalķnuriti?
Almennt - 07.september 2010

Snemma í síðasta mánuði birti breska tímaritið New Scientist forsíðu, sem tilraunir höfðu verið gerðar með þannig að heilalínurit sýndi að þeim sem sáu hana líkaði við hana. Þetta var gert samkvæmt nýrri tækni, sem byggir á viðbrögðum heilans við hinum ýmsu framleiðsluvörum. Stóra spurningin var þessi: myndu sölutölur þessa eintaks af New Scientist verða jafn góðar og niðurstöður heilalínuritsins gáfu til kynna. Í stuttu máli var svarið: Já.
Samkvæmt upplýsingum sem aðstoðarritstjóri blaðsins, Graham Lawton sendi frá sér þá var sala þessa tölublaðs um 12% meiri en sama tölublaðs fyrir ári síðan. Salan er umtalsvert meiri, segir Lawton, en búast mátti við af blaði sem var með þetta forsíðuefni og sem kemur út á þessum árstíma.Talsmenn blaðsins eru sammála um að þessi tilraun hafi verið mjög vel heppnuð og að þessi aðferð muni verða notuð meira í blaðaútgáfu. Spurningin er þá hvort þessi aðferð muni í breyta fréttamati blaða umtalsvert í framtíðinni – að heilalínurit ráði forsíðuefni frekar en fréttamat ritstjórnar - eða hvort þetta sé einungis enn eitt hjálparmeðalið í markaðssetningu blaða sem eiga í vök að ferjast gagnvart öðrum tegundum fjölmiðlunar.
Sjá einnig hér





