Fréttablaðið með yfirburði í lestri
Almennt - 13.ágúst 2010

Fréttablaðið hefur sem fyrr umtalsverða yfirburði yfir morgunblaðið í lestri samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Capacent Gallup fyrir
tímabilið maí- júlí. Meðallestur Fréttablaðsins er 61,45 á meðan meðallestur Morgunblaðsins er 32,1%. Þetta er heldur minni
meðallestur en í síðustu mælingu í apríl, en þá mældist Morgunblaðið með 34% meðallestur og Fréttablaðið
með 64% lestur. Lestur dagblaðanna er nokkuð aldursskiptur, þannig að fleira fólk sem er orðið 50 ára eða meira virðist lesa dagblöðin.
Hins vegar er hlutur Fréttablaðsins hlutfallslega sterkari meðal yngra fólks en hjá Morgunblaðinu.
Sjá einnig hér.





