Fréttamyrkvi í Griklandi
Almennt - 04.júní 2010

Engar sjónvarpsfréttir voru í Grikklandi í gær
Grískir blaðamenn voru í gær í sólarhringsverkfalli og framkölluðu nær algeran fjölmiðlunarmyrkva í landinu.
Verkfallið er hluti af fjölþættum verkfallsaðgerðum fjölmargra launþegahópa til að mótmæla aðhaldsaðgerðum
stjórnvalda og þannig fóru t.d. starfsmenn almenningssamgangna einnig í sólarhrings verkfall í gær. Blaðamannaverkfallið í
gær hafði gríðarleg áhrif um allt landið enda gengu blaðamenn dagblaðanna út og því engin blöð í dag. Á
ljósvakanum voru engar fréttir og enga dægurtengda dagskrá var að sjá eða heyra í sjónvarpi og útvarpi. Þá voru
grískar fréttavefsíður ekki uppfærðar frá morgni fimmtudags og þar til í dag, föstudag.
Sjá meira hér





