Frķblašamarkašur viršist vera aš nį jafnvęgi

Þróunin hefur verið stígandi í lokun fríblaða. Þannig hættu 30 blöð eða titlar (sem komu út í 52 útgáfum) að koma út árið 2007, árið 2008 ár voru þetta 33 titlar í 77 útgáfum, en í fyrra, árið 2009 hættu 42 titlar í 97 útgáfum að koma út. Það sem af er árinu hafa hins vegar aðeins 3 titlar í 4 útgáfum hætt að koma út.
Útbreiðsla fríblaða hefur verið mest í Evrópu og þar hefur samdrátturinn líka orðið mestur. Þannig voru um 140
fríblaðatitlar gefnir út í Evrópu árið 2007 með útbreiðslu upp á 27 milljón eintaka. Í ár er þetta
komið niður í um 87 titla með útbreiðslu upp á 19.3 miljón eintök. Því hefur verið velt upp hvort sjálf
viðskiptahugmyndin um fríblöð sé því ekki að ganga upp, en samdrátturinn er hins vegar ekki einhlítur. Þannig hefur
útbreiðslan og titlafjöldi dregist saman í Evrópu en ekki era ð merkja nein slík merki í Rómönsku Ameríku og Asíu.
Newspaper Innovation stingur upp á því að markaður fyrir fríblöð hafi verið að leita jafnvægis eftir mikla útbreiðslu sprengingu
og óvægna samkeppni. Staðan sé því mun lífvænlegri í dag en áður þar sem færri titlar eru að slástu um
hvert markaðssvæði. Þannig séu nú 3,6 titlar á hvert land í Evrópu á móti 4,7 titlum á árunum 2007 og
2008.
Sjá einnig hér





