:::PRESS.IS:::
		<language>is</language>
Falsaði forsíðumynd
áhrifameiri. Slíkt er þó oftast brot á siðareglum, sérstaklega þegar um er að ræða fréttamyndir. Flestir fjölmiðlar
taka enda mjög strangt á því ef upp kemst að mynd hafi verið fölsuð eða henni breytt verulega. Dagblaðið Le Maghreb í Túnis
gerðist þó sekt um myndafölsun í vikunni og vakti fölsunin althygli alþjóðlega. Um síðustu helgi voru mikil mótmæli í
Túnisborg og á milli 8.000 og 10. 000 mótmælendur voru á götunum. Í helgarblaði Le Maghreb birtist mynd á forsíðu sem sýndi
mótmælendur, en athugulir lesendur tóku eftir því að átt hafði verið við myndina og hlutar af mannfjöldanum höfðu verið
fjölfaldaðir.
Skilafrestur tilnefninga er 6. febrúar!
    <description>Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 9. skipti þann 3. mars næstkomandi. Rétt er að árétta að
skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er mánudagurinn 6. febrúar.
Hvers vegna siðareglur?
    <description>"Við endurskoðun á siðareglum BÍ er nauðsynlegt að fyrir liggi hverjar eru hinar helgu skyldur starfsins; sannleikur, frelsi,
réttlæti og heiðarleiki. - Í senn til þess að blaðamenn sjálfir hafi þar sína stefnuskrá og ekki síður til að
almenningur skilji hvað sé í húfi þegar kemur starfi blaðamanna." Þetta segir Sigurður Már Jónsson, varaformaður BÍ í
grein um siðareglur og endurskoðun þeirra, sem hann hefur sent press.is. Grein Sigurðar fer hér á eftir:
Tjáningarfrelsi og lýðræði
    <description>Innanríkisráðuneytið efnir til  fundar um tjáningarfrelsi og lýðræði föstudaginn 27. janúar næstkomandi klukkan 8.30 til 10
í Iðnó í Reykjavík.  Erindi flytja  Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, og er heiti þess
"Ógna rangfærslur og hlutdrægar fréttir lýðræðinu?" Þá flytur Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður erindi sem hún
nefnir  "Segðu mér sömu söguna aftur". Loks mun Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl. fjallar um Tjáningarfrelsi í tengslum við
ákvæði hegningarlaga um meiðyrði. Í framhaldinu gefst kostur á fyrirspurnum og umræðum.
Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Hægt verður að kaupa léttar morgunverðarveitingar á staðnum
Fjörugar umræður um siðareglur
    <description>Í fyrrakvöld var haldið pressukvöld í húsakynnum B.Í. um endurskoðun siðareglan félagsins.  Málið hefur verið á
döfinni lengi og fyrir síðasta aðalfundi lágu fyrir tillögur að nýjum siðareglum en málið komst ekki á dagskrá og var
því vísað til stjórnar. Á pressukvöldinu höfuð framsögu þeir Birgir Guðmundsson, sem fór fyrir endurskoðunarnefnd um
reglurnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður, sem verið hefur gagnrýninn á tillögur endurskoðunarnefndarinnar, og Björn Vignir Sigurpálsson
blaðamaður sem stjórn BÍ fékk til að fara yfir málið og setja í samhengi við reglur kollega í nálægum löndum.
Fundarstjóri var Erla Hlynsdóttir stjórnarmaður í BÍ.