:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Getur hönnun bjargað dagblöðum?

Jacek Utko
Jacek Utko

Pólski dagblaðahönnuðurinn Jacek Utko, sem er hönnunarstjóri hjá Bonnier Business Press í Varsjá í Póllandi hefur í tvígang unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir best hannaða dagblað í heimi. Þetta var annars vegar pólskt blað og hins vegar eistneskt.  Utko hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvers vegna blöð séu á undanhaldi sem fjölmiðlar og telur að hönnun geti skipt mjög miklu máli ef hún sé markviss og í samræmi við það sem efni blaðsins fjallar um og þau markmið sem útgáfan hefur sett sér.

 

Pólski dagblaðahönnuðurinn Jacek Utko, sem er hönnunarstjóri hjá Bonnier Business Press í Varsjá í Póllandi hefur í tvígang unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir best hannaða dagblað í heimi. Þetta var annars vegar pólskt blað og hins vegar eistneskt. Utko hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvers vegna blöð séu á undanhaldi sem fjölmiðlar og telur að hönnun geti skipt mjög miklu máli ef hún sé markviss og í samræmi við það sem efni blaðsins fjallar um og þau markmið sem útgáfan hefur sett sér. Hann hefur skilgreint sjö skref til árangursríkrar hönnunar á dagblaði. Þessi skref eru: 1. Leiðin að takmarkinu (Strategy): Hvert er markmiðið? Hvar of hvernig getum við náð í nýja lesendur og hvernig getum við aukið söluna? 2. Innihaldið: Hvaða blaðhlutar eru líklegir til a geta náð í nýja lesendur og auglýsendir og hvernig er best að þjóna þessum hópum 3. Hönnun: Er hönnunin í samræmi við þær leiðir að takmarkinu sem við höfum sett okkur og í takt við innihaldið? 4. Prófun: Hvernig kemur nýtt blað út í könnunum hjá tilraunahópum? 5. Vinnuskipulag: Hvernig getur skipulag og uppbygging á vinnustaðnum hjálpað til við að búa til betra blað? 6. Vörumerki: Hvernig geta innri skilgreiningar og vörumerki einstakra hluta styrkt blaðið og hjálpað tilvið að stækka það og gera að samstæðari heild. 7. Framkvæmd: Hvernig er best að þjálfa starfsfólkið og innleiða nýja hönnun og verkferla og tyggja í leiðinni að samfella verði í gæðum. Hér má sjá áhugaverðan fyrirlestur sem Jacek Utko flutti um hönnun og lífvænleika dagblaða:

 

 



 Hann hefur skilgreint sjö skref til árangursríkrar hönnunar á dagblaði. Þessi skref eru:
1 Leiðin að takmarkinu (Strategy):  Hvert er markmiðið? Hvar of hvernig getum við náð í nýja lesendur og hvernig getum við aukið söluna?
2.Innihaldið: Hvaða blaðhlutar eru líklegir til a geta náð í nýja lesendur og auglýsendir og hvernig er best að þjóna þessum hópum
3. Hönnun: Er hönnunin í samræmi við þær leiðir að takmarkinu sem við höfum sett okkur og í takt við innihaldið?
4.  Prófun: Hvernig kemur nýtt blað út í könnunum hjá tilraunahópum?
5. Vinnuskipulag:   Hvernig getur skipulag og uppbygging á vinnustaðnum hjálpað til við að búa til betra blað?
6. Vörumerki:   Hvernig geta innri skilgreiningar og vörumerki einstakra hluta styrkt blaðið og hjálpað tilvið að stækka það og gera að samstæðari heild.
7. Framkvæmd:  Hvernig er best að þjálfa starfsfólkið og innleiða nýja hönnun og verkferla og tyggja í leiðinni að samfella verði í gæðum.
Hér má sjá áhugaverðan fyrirlestur sem Jacek Utko flutti um hönnun og lífvænleika dagblaða:



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning