:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Gķsli Siguršsson kvaddur

Gķsli Siguršsson
Gķsli Siguršsson
Á föstudaginn, 2. júlí, kl. 15:00, verður Gísli Sigurðsson blaðamaður og listmálari og  handhafi blaðamanaskírteinis nr. 6  jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í Reykjavík. Gísli lést á Landspítalanum þann 27. júní síðast liðinn, 79 ára að aldri. Gísli byrjaði í blaðamennsku árið 1955 og var í blaðamennsku - lengst af með Lesbók Morgunblaðsins - fram til ársins 2000.
Á 110 ára afmæli Blaðamannafélagsins árið 2007 var gefin út bókin Íslenskir blaðamen og þar var ítarlegt viðtal við Gísla um starfsferil hans. Þar sagði hann m.a. um höfund Íslendingabókar Sturlungu: "En hver sem höfundurinn annars var, þá var sá afbragðsgóður blaðamaður sem tókst að gera efnið áhugavert. Gæddi það lífi svo maður les bæði til ánægju og fróðleiks. Frásögnin er sett fram í knöppum og hnitmiðuðum stíl, enda þurfti að spara skinnhandritin sem ritað var á. Höfundar Íslendingasagnanna, sem flestir eru nafnlausir, væru í nútímanum rithöfundar og blaðamenn í fremsu röð."  Flestir myndu telja að þessi lýsing hafi einmitt átt við Gísla sjálfan.
Sjá um Gísla hér


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskrįning