:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Hatursáróður og tjáningafrelsi í sænskum kosningum

Forsvarsmenn Sænska demókrataflokksins, sem er yst til hægri í sænskum stjórnmálum, hafa ákveðið að kæra birtingu nokkurra fjölmiðla á eigin auglýsingu til saksóknara. Flokkurinn segist þó ekki hafa neitt á móti því að auglýsingar hans í kosningabaráttunni séu birtar, heldur séu þeir að þessu til þess að fá úrskurð yfirvalds um að auglýsingar þeirra séu löglegar.  Í Svíþjóð er svokallaður hatursáróður gegn minnihlutahópum óleyfilegur í fjölmiðlum og var það niðurstaða sjónvarpsstöðvarinnar TV4 að auglýsing Sænska demókrataflokksins bryti  gegn slíkum lögum og siðareglum.

Auglýsingin sýnir sænskan ellilífeyrisþega í göngugrind á leiðinni að opinberum framlögum, en hópur búrkuklæddra kvenna með barnavagna ryðst fram úr henni og kemst á undan henni í sjóðina.  Flokkurinn segir auglýsinguna ekki beinast að útlendingum eða hópi innflytjenda, heldur að sé þetta auglýsing um forgangsröðun.  Því var sjónvarpsstöðin TV4 ekki sammála og ekki heldur mikill fjöldi Svía, sem rætt hefur málið, m.a. á vefsíðu sænska Blaðamannafélagsins. Hér á eftir má sjá auglýsinguna:

Hér á Íslandi eru ákvæði um hatursáróður í nýju fjölmiðlafrumvarpi og á Eyjunni í gær var það ákvæði látið vísa til þess sem kallað var: „bann við hvössum skoðanaskiptum um stjórnmál?“   Í hegningarlögum á Íslandi eru þegar ákvæði um hluti af þessu tagi og hefur meira að segja fallið dómur í Hæstarétti á grundvelli þessa ákvæðis.

Ákvæðið í hegningarlögum sem um er að ræða er í 223 gr.a.  og er svohljóðandi: Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar]1) sæti sektum …2) eða fangelsi allt að 2 árum.]3)

Dómurinn sem fallið hefur hér um mál af þessu tagi er dómur sem Hlynur Freyr Vigfússon formaður Félags þjóðernissinna fékk eftir viðtal í DV  17. febrúar 2001. Þar vék hann talinu að þeldökku fólki með hætti sem þótti almennt vafasamur.  Í niðurstöðu Héraðsdóms, sem var síðan staðfest í Hæstarétti segir: “Ummælin eru niðrandi og fela í sér háð og róg í garð svartra manna.  Tekið var tillit til tjáningarfrelsisákvæða en þau má skilyrða. “Þótt tjáningarfrelsið sé jafnframt eitt af mikilvægustu réttindum manna og stoðum lýðræðis, er orðnotkun sem lýsir kynþáttahatri eða fordómum á opinberum vettvangi ekki refsilaus.”

Þess má geta að danski Þjóðarflokkurinn hefur tekið þetta mál upp og gert athugasemdir við ritskoðun sænskra fjölmiðla (raunar út af fleiru en þessu) og virðist sem svo að í Danmörku vilji  margir túlka þrengra þau skilyrði sem nægja til að skerða tjáningarfrelsið.  Mál af þessu tagi gæti auðveldlega komið upp í íslenskum fjölmiðlum, hvort sem hatursákvæði fjölmiðlafrumvarpsins verða að lögum eða ekki og núgildandi ákvæði hegningarlaga gilda óbreytt.
Sjá frétt á Journalisten.se
Sjá frétt á mbl.is

 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning