Haust- og vetrarleiga orlofshúsa B.Í.
Athygli er vakin á haust- og vetrarleigu orlofshúsa BÍ á Akureyri og í Brekkuskógi.
Hægt er að bóka húsin sex mánuði fram í tímann og leigja þau um
helgar eða í lengri tíma eftir hentugleikum. Húsin í Brekkuskógi voru öll endurnýjuð vorið 2009 og húsið á
Akureyri fyrir fáum árum síðan.
Í öllum húsunum eru öll helstu heimilistæki,
ísskápur, uppþvottavél, eldavél með ofni, útigrill, tölvutenging, dvd spilari, sjónvarp og allar helstu íslensku
sjónvarpsrásirnar. Þá eru heitir pottar í bústöðunum í Brekkuskógi. Svefnpláss er fyrir 5-7 manns í
raðhúsinu á Akureyri, 5-6 í Litlu-Brekku og 9-10 manns í Stóru-Brekku.
Helgarleiga frá
fös-sun er kr. 8 þús fyrir Litlu-Brekku og 11 þús fyrir Stóru-Brekku og raðhúsið á Akureyri fyrir fullgilda félagsmenn.
Greiða þarf við bókun annað hvort með greiðslukorti eða með því að leggja inn á reikning BÍ. Hægt er að
bóka með því að senda tölvupóst á bi@press.is eða með því að hringja í síma 553
9155.





