:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Haust- og vetrarleiga orlofshúsa B.Í.

Athygli er vakin  á haust- og vetrarleigu orlofshúsa BÍ á Akureyri og í Brekkuskógi.

Hægt er að bóka húsin sex mánuði fram í tímann og leigja þau um helgar eða í lengri tíma eftir hentugleikum.  Húsin í Brekkuskógi voru öll endurnýjuð vorið 2009 og húsið á Akureyri fyrir fáum árum síðan.
Í öllum húsunum eru öll helstu heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, eldavél með ofni, útigrill, tölvutenging, dvd spilari, sjónvarp og allar helstu íslensku sjónvarpsrásirnar.  Þá eru heitir pottar í bústöðunum í Brekkuskógi.  Svefnpláss er fyrir 5-7 manns í raðhúsinu á Akureyri, 5-6 í Litlu-Brekku og 9-10 manns í Stóru-Brekku.
Helgarleiga frá fös-sun er kr. 8 þús fyrir Litlu-Brekku og 11 þús fyrir Stóru-Brekku og raðhúsið á Akureyri fyrir fullgilda félagsmenn.  Greiða þarf við bókun annað hvort með greiðslukorti eða með því að leggja inn á reikning BÍ.  Hægt er að bóka með því að senda tölvupóst á bi@press.is eða með því að hringja í síma 553 9155.

 



Auglýsingar

Siðanefnd
Blaðamaðurinn
Blaðamannaverðlaun

Könnun

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að fjölmiðlar hafi rækt illa það h lutverk sitt að upplýsa almenning um stöðu mála og veita stjórnvöldum og einkaaðilum gagnrýnið aðhald.

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning