:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

IFJ mótmælir framgöngu yfirvalda gegn Sígunum

Roma-fólk í Frakklandi
Roma-fólk í Frakklandi
Alþjóðasamband blaðamanna, IFJ og aðildarsamband þess, Evrópusamband blaðamanna EFJ, hafa sent frá sér harðorð mótmæli gegn framgöngu franskra stjórnvalda gagnvart Róma-fólkinu (Sígunum)  þar í landi og vara við að verið sé að kynda undir útlendingahatri og vinna gegn umburðarlyndi. Jafnframt gagnrýna samtökin harðlega að blaðamönnum hafi verið torveldaður aðgangur að vettvangi í tjaldbúðum Rómafólksins þar sem yfirvöld höfðu látið til skarar skríða nú um helgina.  IFJ bendir á að óþolandi sé að blaðamönnum hafi verið meinað að fylgjast með því þegar lögreglan hreinsaði og flutti fólk með valdi burt af tjaldsvæði sem Róma-fólkið hafði lagt undir sig í miðborg Saint-Etienne, en bæjaryfirvöld höfðu látið fólkinu í té rennandi vatn og þurrklósett.

Þetta var fyrsta aðgerðin sem lögreglan greip til eftir að Sarkozy forseti tilkynnti um hertar aðgerðir á þessu sviði – m.a. að fjarlægja Róma- fólk af um 300 svæðum þar sem það hefur komið sér fyrir í leyfisleysi.  “Óþolinmæði og vanstilling stjórnvalda mun einungis leiða til enn frekara útlendingahaturs og kynþáttahyggju.  Svona framkoma við fólk sem kemur frá öðrum Evrópusambandsríkjum er bæði á lagalega gráu svæði og er sérlega varhugaverð, því þetta eykur mjög á spennu milli samfélaga,” segir Aidan White framkvæmdastjóri IFJ.
Meira hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning