:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Írar duglegir blaðalesendur

Írar eru með allra iðnustu blaðalesendum í heiminum, en um 86% þeirra lesa dagblað daglega samkvæmt því sem fram kemur í mælingum JNRS (Joint National Readership Survey).  Engu að síður eru blikur á lofti því lestur hefur minnkað nokkuð á síðustu 12 mánuðum.  Frank Cullen hjá Landsambandi dagblaða segir þennan samdrátt skýrast af því að fleiri eru altvinnulausir en áður og hefði sé fyrir því að menn deili með sér dagblöðum á vinnustöðum. Þar sem færri séu í vinnu þá séu færri sem hafi tækifæri til að deila dagblöðunum á vinnustað.  Það kemur einnig í ljós að mest lesna blaðið á Írlandi er The Irish Independent, sem bætti við sig 5.000 lesendum á þessum tíma og hefur því um 560.000 lesendur í allt.  Sjá enn frekar hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning