:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

LA Times gagnrýnt fyrir auglýsingamennsku

Forsíðurnar tvær - auglýsingin og raunveruleg forsíða
Forsíðurnar tvær - auglýsingin og raunveruleg forsíða

Borgarráð  Los Angeles (County Board of Supervisors) hefur sent stærsta blaði borgarinnar alvarlega orðsendingu þar sem segir: Hættið að segja auglýsingar í blaðið sem eru látnar líta út fyrir að vera fréttir!
 Bæjaráðið sendi á dögunum áminningarbréf til Tribune Co.  sem er útgáfufyrirtæki Los Angeles  Times vegna fjögurra síðna auglýsingakálfs sem var utan um aðla fréttakálf blaðsins sem kallaður „LATExtra“.  Auglýsingasíðurnar voru hannaðar nánast nákvæmlega eins og fréttakálfurinn sjálfur með mjög svipuðum haus og öll útlitshönnun og uppsetning var eins og um raunverulegar fréttir væri að ræða.  Undir haus blaðsins stóð að vísu með rauðum stöðum „auglýsing“, en fæstir tóku eftir því fyrr en við nána skoðun. Stjórnendur blaðsins vísa þó í þennan borða sem næga auðkenningu á að um auglýsingu hafi verið að ræða og að viðmiðum og reglum blaðsins hafi þannig verið fylgt.

Auglýsingakálfurinn var frá Universal Studios og fjallaði um King Kong, nýjasta ferðamannafyrirbærið í Hollywood. Auglýsingin átti að líkja eftir því hvernig LA Times myndi dekka í frétt það þegar þessi risa api færi með ofstopa um borgina.
Þetta var full langt gegnið að mati borgarráðsins, sem í áminningarbréfi sínu segir að LA Times ætti að „hætta að selja útsíður sínar undir auglýsingar, sérstaklega væri ámælisvert að gera það með þessum hætti sem væri ógnandi og til þess fallinn að vekja upp ótta. Herkostnaðurinn af þessari ósmekklegu sölumennsku fyrir íbúa Los Angeles væri mun meiri en einhver skammtímagróði fyrir Tribune útgáfufyrirtækið.“  Auk þess bætti borgarráðið við,  „grafa þessar gervifréttir undan tiltrú fólks á mikilvægi og hlutverki blaðsins.“
Sjá einnig hér


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning