Ljómyndasýning á Mokka
Almennt - 12.ágúst 2010

Ein myndanna á sýningunni.
Þann 20. ágúst verður opnuð ljósmyndasýningin Secondo á Mokka Kaffi við Skólavörðustíg 3a, Reykjavík. Á sýningunni verða svarthvítar ljósmyndir frá Ítalíu, eftir Karl R Lilliendahl ljósmyndara. Secondo er sjöunda einkasýning Karls. Titill sýningarinnar er vísun í sekúndubrotið sem það tekur að frysta augnablikið. Myndirnar eru teknar í ítölsku borgunum Lucca, Bologna og Feneyjum. Sýningin verður opin til 23. september.





