Málþing um IMMI

Á morgun, fimmtudaginn 9. september kl. 10.30, í stofu K201 mun Háskólinn á Akureyri og aðstandendur IMMI (Icelandic Modern Media Initiative)
verkefnisins standa fyrir málþingi. IMMI snýst um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og
upplýsingafrelsis. Þannig megi til dæmis styðja betur við rannsóknarblaðamennsku, stuðla að gegnsæi og vinna gegn spillingu.
Þingsályktunartillaga þar að lútandi var einróma samþykkt á Alþingi þann 16. júní 2010. Málþingið
fer fram í HA og er öllum opið. Meðal gesta á málþinginu er dr. Thomas Horen, prófessor við Háskólann í Münster
í Þýskalandi og gestaprófessor við Háskólann á Akureyri, sem er vel þekktur fjölmiðlalögfræðingur í
Þýskalandi og Evrópu.
Dagskráin sem hér segir:
Málþing um IMMI
Setning
10: 30 Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri
IMMI verkefnið
10:45 Birgitta Jónsdóttir, þingmaður og fyrsti flutningsmaður málsins á Alþingi
11:05 Róbert Marshall, þingmaður og fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands
11:25 Smári McCarthy, talsmaður verkefnisins og í stjórn Félags um stafrænt frelsi á Íslandi
11:40 Ragnar Guðmundsson
12:00 Aðalheiður Ámundadóttir, fulltrúi í stjórnlaganefnd
12: 00 Hádegishlé
13:00 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
13:15 Dr. Thomas Hoeren, prófessor við Háskólann í Münster í Þýskalandi og gestaprófessor við
Háskólann á Akureyri
13:35 Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri
13:55 Dr. Markus Meckl lektor við Háskólann á Akureyri





