:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Mannfólkið andspænis guði sínum

Ken Oprann
Ken Oprann

Norski ljósmyndarinn Ken Opprann er staddur hér á landi í tengslum við útgáfu bókar sinnar TRÚ – mannfólkið andspænis guði sínum og opnun samnefndrar sýningar í Listasafninu á Akureyri. Hann heldur opinn fyrirlestur í sal Ljósmyndasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15  í dag, fimmtudaginn 2. september klukkan 17. Að fyrirlestrinum standa Bókaútgáfan Opna, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og  Blaðaljósmyndarafélag Íslands. Aðgangur er ókeypis

Ken Opprann (f. 1958) nam ljósmyndun við Academy of Arts í San Francisco, en starfaði síðan um árabil sem blaðaljósmyndari við Aftenposten í Ósló. Á síðustu árum hefur hann unnið sjálfstætt og lagt sérstaka áherslu á heimildaljósmyndun. Ken Opprann er mikill ferðalangur og hefur ferðast til tæplega 100 landa um allan heim og ljósmyndað það sem fyrir augu ber. Hann hefur nokkrum sinnum unnið til viðurkenninga fyrir ljósmyndir sínar og var m.a. sæmdur hinum virtu verðlaunum, Fuji European Press Photographer Award, árið 2002.

Ken vann í 15 ár við að afla myndanna sem prýða bók hans, sótti ótal trúarhátíðir og vitjaði helgistaða í fjölmörgum löndum. Myndirnar eru áhrifamiklar og blæbrigðin mýmörg – þar fer saman falslaus einlægni og þrotlaus leit að þeim mætti sem er æðri öllum skilningi. Myndirnar byggja brýr milli trúarbragða og auka virðingu fyrir framandi trúarbrögðum og siðum – handan allra landamæra. Í fyrirlestri sínum mun Ken fjalla um einstakar myndir og segja söguna að baki þeim.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning