Meira en hundrað manns sagt upp hjá DN
Almennt - 10.febrúar 2010

Sænska dagblaðið Dagens Nyheter hefur tilkynnt um stórfelldan niðurskurð til að mæta miklum hallarekstri allt síðstliðið ár.
Búist er við að yfir 100 manns verði sagt uppþegar upp verður staðið, og að ritstjórnarskrifstofurnar fái sinn skerf af niðurskurðinum.
Tapið á síðasta ári nam rúmlega 9,5 milljón evra sem er mun meira en búist hafði verið við. Stjórnendur fyrirtækisins
segja að blaðið þurfi að fóta sig í nýjum veruleika þar sem samkeppnin er gríðarlega hörð, m.a. við netmiðla og
fríblöð. Þetta feli í sér að fækkun starfa ein og sér dugi ekki, og því megi búast við víðtækum
sparnaðaraðgerðum í framhaldi af því að uppsagnirnar koma til framkvæmda.
Sjá einnig hér





