:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Morgunblaðið braut á blaðamanni í tölvupóstmáli

„Þá ber að hafa í huga hvers kvartandi mátti vænta í ljósi ákvæðis innanhússreglna Árvakurs þar sem segir að „Meginreglan er að allur póstur á póstmiðlara fyrirtækisins í persónutengdum pósthólfum er álitinn einkapóstur viðkomandi starfsmanns og verður ekki opnaður af öðrum, nema með leyfi starfsmannsins.". Þá er einnig mikilvægt að starfsmenn fjölmiðla geti tryggt vernd heimildamanna sinna og haldið trúnað við viðsemjendur sína í ljósi hlutverks þeirra í upplýstu samfélagi.“  Þetta segir m.a. í úrskurðarorðum Persónuverndar  út af  skoðun Morgunblaðsins á tölvupósti fyrrum starfsmanns. Var niðurstaðan sú að blaðinu hafi borið að gera honum aðvart áður en skoðunin fór fram og gefa honum kost á að vera viðstaddur. Var þar m.a. litið til innanhúsreglna Morgunblaðsins sjálfs.
Sjá úrskurðinn í heild hér



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning