
Arne König, formaður EFJ
“Þetta er fáránleg gjaldtaka hjá yfirvöldum vegna fyrirbæris sem er talið með mikilvægustu menningarminjum Evrópu. Allir eiga að
geta tekið myndir af opinberum byggingum og minnismerkjum og kerfi sem kemur í veg fyrir slíkt ber að leggja af þegar í stað,” segir Arne König,
formaður Evrópusambands blaðamanna, EFJ. Hann er þar að vísa til ákvörðunar um að gera öllum skylt að greiða gjald fyrir að taka
mynd af Zeche Zollverein einhverju mikilvægasta minnismerki um iðnbyltinguna í miðju Rhur héraði. EFJ ásamt fjölmörgum öðrum
félögum hafa bundist samtökum um að mótmæla þessari gjaldtöku og um þetta er m.a. fjallað í nýju fréttabréfi IFJ um
höfundaréttarmál.
Fréttabréfið má sjá
hér.