Mótmæla ítölsku lagafrumvarpi

Frumvarpið var lagt fram af Angelino Alfano dómsmálaráðherra og gengur undir nafninu „keflunar löggjöfin“ eða „legge
bavaglio“. Það snýst um heimildir dómara til að fyrir skipa símhleranir og hefur frumvarpið þegar verið samþykkt í
öldungadeild þingsins, en á enn eftir að fara í gegn í neðri deildinni. Bæði EFJ og FNSI hafa varað við að frumvarpið sé
í raun tilraun til að ritskoða blaðamenn og koma í veg fyrir að þeir geti orðið sér úti um viðkvæmar en mikilvægar
upplýsingar, sem varða almannahag. Einkum snertir þetta möguleikann til að vernda heimildarmenn. Þannig gengur framkvæmdastjóri Blaðamannasambands
Ítalíu, Franco Siddi svo langt að segja: „Þessi löggjöf mun svipta borgarana grundvallarrétti þeirra til upplýsinga.“
FNSI er nú í samstarfi við fjölmörg önnur verkalýðsfélög að skipuleggja umfangsmikil mótmæli um gjörvalla
Ítalíu, sem standa eiga milli kl. 17:00 og 21:00 á fimmtudaginn, 1. júlí. Einnig stendur til að skipuleggja „dag þagnarinnar“ eða
„fréttamyrkva“ þann 9 júlí, en þá myndu allir fjölmiðlar í landinu leggja niður störf.
„Þetta er ekki barátta sem kemur ítölskum blaðamönnum einum við. Hér er á ferðinni barátta um
mannréttindi og sérstaklega um frelsi fjölmiðla og rétt almennings til upplýsinga,“ segir Arne König forseti EFJ. „Blaðamenn eiga ekki að
þurfa að stunda feluleik með heimildir sínar, hvort sem þær eru opinberar eða koma frá viðkvæmum og óþekktum aðilum.
Heimildamenn blaðamanna þurfa að geta tjáð sig og notið öryggis í leiðinni,“ segir Köning ennfremur





