:::PRESS.IS:::

Blaðamannafélag Íslands

Fréttir

Neyðarkall frá blaðamönnum í Pakistan

Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur óskað eftir því að fjölmiðlafólk og samtök þess um allan heim að það sýni Blaðamannasambandinu í Pakistan ( PFUJ) stuðning í þeim miklu flóðahamförum sem riðið hafa yfir landið með skelfilegum afleiðingum. PFUJ hefur sent út alþjóðlegt neyðarkall til kollega þar sem óskað er eftir stuðningi við fjölmiðlafólk sem orðið hefur illa úti.

„Þetta eru skelfilegar hamfarir og blaðamannafélög um heim allan þurfa að gera það sem þau geta til að aðstoða kollega sem eru fórnarlömb. Félagar okkar í Pakistan reiða sig á okkur til stuðnings við að yfirvinna áfallið sem felst í glötuðum mannslífum og möguleikum til afkomu,“ segir Aidan White framkvæmdastjóri IFJ.
Samkvæmt upplýsingum frá PFUJ hefur einn blaðamaður dáið í flóðunum, en um 213 eru nú heimilislausir.  Ástandið og kringumstæður fólks eru stöðugt að versna og hefur PFUJ því óskað eftir fjárframlögum til neyðaraðstoðar við blaðamenn og fjölskyldur þeirra.

Framlög má segna á:
Pakistan Federal Union of Journalists  (PFUJ)
Account No. 25574
National Bank of Pakistan, Corporate Branch, Super Market,
Islamabad, Pakistan.

Sjá einnig hér


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning