Ný tækifæri í almannatengslum

Richard Sambrook, fyrrum fréttastjóri hjá BBC og núverandi efnisstjóri hjá alþjóðlega almannatengslafyrirtækinu Elderman, segir í nýju viðtali við The Independendt í Bretlandi að upp séu að renna tímar stórkostlegra tækifæra fyrir almannatengslafyrirtæki. Mikil gróska er í almannatengslum í Bretlandi og rímar það við fréttir héðan frá Íslandi, en á dögunum var sagt frá rannsókn þeirra Þorbjörns Broddasonar og Ragnars Karlssonar hér á press.is þar sem fram kom að almannatenglar á Íslandi eru nú jafn margir starfandi blaðamönnum. En það er ekki nóg með að vöxtur sé í þessum geira heldur telur Richard Sambrook að almannatengslafyrirtæki geti víkkað út starfssvæði sitt og tekið yfir ýmislegt sem áður hafi verið á sviði hefðbundinna fjölmiðla.
Slíkar breytingar telur hann að séu líklegar til að valda miklum áhyggjum hjá talsmönnum hefðbundinnar blaðamennsku. Ástæða er sú að nú þegar hefðbundnir miðlar hafa klofnað upp og dreifst á margar gáttir einkum fyrir tilstilli nýrrar tækni, þá hafi samhliða skapast tækifæri fyrir almannatengslafyrirtæki til að tengja saman hefðbundnar markaðssetningaraðferðir og hina nýju samfélagsvefi og netmiðla þannig að útkoman verði einhvers konar sambland af samfélagsupplýsingum og auglýsingum. Í það þurfi því að ráða fólk sem er bæði með hefðbundna ritstjórnarkunnáttu og viðhorf og svo auglýsinga- eða markaðssýn. Starfsfólk sem framleitt getur efni sem hefur hvoru tveggja í senn almennt upplýsingagildi en er um leið kynning fyrir sérhagmuni, eins konar blaðamennsku-líki. Slíku efni yrði síðan í vaxandi mæli dreift beint til notenda of framhjá hefðbundnu miðlunum sem misstu þá enn einn tekjuspóninn úr sínum aski.Sjá nánar hér





