Nýjar siðareglur 365
Í reglunum er einnig tekið á því vandamáli sem upp hefur komið vegna óskýrra ákvæða í prentlögum varðandi ritstjórnarlega ábyrgð, en samkvæmt prentlögunum getur stefnandi valið hvort hann stefnir útgefanda eða ritstjóra/blaðamanni fyrir ummæli sem viðhöfð eru. Þetta hefur leitt til þess að í sumum tilfellum hefur útgefandi borðið hina fjárhagslegu ábyrgð á ritstjórnarefni á meðan ritstjórn ber hana ekki. Spurningin sem þá vaknar er, hvort í raun sé vegið að ritstjórnarlegu sjálfstæði ritstjórnarinnar ef sá sem ber ábyrgð á efninu er utan ritstjórnarinnar? Í siðareglunum er þetta orðað svona: „Ritstjórar hverju sinni munu gera samning við 365 þar sem kveðið er á um rétt 365 til að sækja til viðkomandi ritstjóra þær fjárhagslegu bætur sem dæmdar verða vegna slíkra mála, þó að hámarki allt að einum mánaðarlaunum ritstjóra. Slíkt fyrirkomuleg er liður í að festa enn betur í sessi sjálfstæði ritstjórna miðla 365. Þar fari saman ritstjórnarlegt frelsi, sjálfstæði og ábyrgð.“
Í tölvubréfi sem Ari Edwald forstjóri 365 sendi starfsmönnum sínum á dögunum kemur hann inn á þessar breytingar og segir þar: „Jafnframt vil ég vekja athygli á atriði í nýjum siðareglummiðla, sem lætur kannski ekki mikið yfir sér. Það er að gert er ráð fyrir að fyrirtækið krefji stjórnendur fréttastofa og ritstjórna um bætur sem dæmdar eru vegna ólögmætrar framgöngu þessara eininga, allt að einum mánaðarlaunum. Þetta hefur reyndar átt við um ritstjórnir blaða samkvæmt prentlögum, ef sá sem brotið er á kýs að stefna ritstjóra, en í praxís hafa menn í ríkari mæli kosið að stefna útgefanda og dómstólar gert útgefendur ábyrga fyrir hverju orði blaðanna. Það er óheillaþróun sem vegur að sjálfstæði blaða og blaðamanna. Á hinn bóginn hefur það lengi, eða alltaf, verið sjónvarpsstjórinn (að lögum, þe forstjóri 365) sem ber ábyrgð á fréttum og þáttum ljósvakamiðlanna. Markmiðið með þessari breytingu, þótt hún sé kannski að einhverju leiti táknræn vegna fjárhæðartakmarkana, er að undirstrika sjálfsæði þessara eininga innan fyrirtækisins. Ábyrgðin og valdið sé hjá faglegum stjórnendum þeirra. Þessar breytingar og fleiri eru liður í því að bæta og kynna okkar vinnubrögð og reglur sem verður til þess að auka traust á okkar fjölmiðlum. Við sjáum af ákveðnum könnunum og auglýsingum keppinauta að þar eigum við nokkuð inni. Útbreiðslan, notkunin og tekjusköpunin skiptir okkur sem fyrirtæki þó auðvitað mestu máli og meira máli en huglæg svör um traust sem ekki er fylgt eftir í neyslumynstrinu.“





